Tegjulak úr 100% hreinni lífrænni bómull með mjúku en endingargóðu yfirborði. Í lakinu eru örfínir silfurþrærðir sem leiða jarðtenginguna um lakið.
Liturinn á lakinu er náttúrulegur bómullarlitur (e.off-white).Á einu horni laksins er tengibútur fyrir jarðtengingarsnúru.
Til að ná sem mestri jarðtengingu á meðan þú sefur viltu hafa sem mest beina snertingu húðarinnar við lakið.
Með lakinu fylgir 4,6 metra jarðtengingarsnúra og kló fyrir jarðtengingu sem þú setur í venjulega jarðtengda innstungu.
Lestu allt um jarðtengingu hér: https://www.myselflovestudio.com/umjardtengingu
Hálft lak fyrir jarðtengingu 305cm x 90cm
Það er nauðsynlegt að þvo bómullarvörurnar sem eru til jarðtengingar. Að þvo þær á réttan hátt mun ekki hafa skaðleg áhrif á þær heldur í raun hefur það þau áhrif að jarðtenging helst lengur í þræðunum. Þegar lakið er þvegið fer úr því líkamssviti og olíur úr húðinni sem geta komið í veg fyrir jaðrtengingu.
Við mælum með
- að þvo lakið vikulega eða í það minnsta hálfsmánaðarlega
- að þvo lakið í þvotta vél við 40°C
- að nota þvottefni sem er laust við hörð efni og olíur (sjá þvottefni sem við mælum með)
- að þurrka lakið annað hvort með því að hengja það upp eða í þurrkara á lægri hita en 65°C
- að strauja lakið á lágum hita, ef þú vilt strauja það
Við mælum EKKI með
- að þvo lakið með þvottefni sem inniheldur bleikiefni
- að þvo lakið með mýkingarefni
- að þvo lakið ekki með hvítunarefnum eða tæringarefnum (oxdent)
- að þvo lakið ekki með þvottefni sem gefur sterka lykt hvort sem er efnalykt eða ilmkjarnaolíur
- að þurrhreinsa lakið ekki
Bleikiefni, krem og olíur geta lagst á silfrið og komið þannig í veg fyrir að það leiði jarðtenginguna. Sama á við um mýkingarefni, það safnast utan á silfrið.
Vinsamlegast ath. líka að þvottaefnahólfið á þvottavélinni sé laust við leyfar af þvottefnum sem ekki henta fyrir þessar vörur áður en þvegið er.
Við ráðleggjum að bíða amk í klukkutíma með að leggjast á jarðtengdar vörur með silfurþráðum eftir að krem eða olíur hafa verið borin á sig.